Bílahúsin


Bílastæðasjóður rekur 7 vel staðsett bílahús í miðborg Reykjavíkur með 1.140 stæðum. Bílahúsin eru afrakstur af rekstrarafgangi sjóðsins undanfarin ár. Rekstur bílahúsa skiptist í leigu skammtímastæða og leigu langtímastæða. Mikil ásókn hefur verið í leigu langtímastæða og biðlistar í mörgum húsum.

Bílahús

Umsóknir um langtímastæði, þar sem fram kemur nafn, símanúmer og greiðandi, ef annar en umsækjandi, sendist á bilastaedasjodur@bilastaedasjodur.is . Smellið á nöfn húsanna hér til vinstri til að fá upplýsingar um fjölda lausra langtímastæða ofl.