Spurningar og svör


Ég borgaði fyrir símastæði en fékk samt gjald?

 Í notendaskilmálum leggja.is segir m.a. 

8.grein

...þurfa notendur að merkja ökutæki sitt með merki þjónustunnar, en það þarf að vera á áberandi stað þar sem stöðuverðir Bílastæðasjóðs Reykjavíkur geta séð það skýrt og greinilega vinstramegin í neðanverðri framrúðu ökutækisins.

 

Ég valdi rangt símastæði og fékk á mig gjald?

 

Í notendaskilmálum leggja.is segir m.a.

 

10.grein

Notandi ber ávallt alla ábyrgð á tjóni vegna rangrar notkunar á þjónustunni. Hvort sem er vegna vals á röngu gjaldsvæði sem afleiðing af röngum innslætti eða af öðrum orsökum, þá er það á hans eigin ábyrgð. Slík mistök hafa engin áhrif á rétt Bílastæðasjóðs Reykjavíkur til greiðslu tímagjalds eða álagningar og innheimtu stöðvunarbrotagjalds.

 

Ég gat ekki hringt inn til að skrá mig í stæði.

 Í notendaskilmálum leggja.is segir m.a. 

11. grein

Notandi er ekki undanskilinn greiðslu stöðugjalds þó þjónustan sé ekki aðgengileg af einhverjum ástæðum, heldur ber honum þá að nýta aðra greiðslumöguleika til greiðslu stöðugjalds.

 

Eru atvinnubílar (sendibílar t.d.) undanþegnir gjaldskyldu við lestun og losun þeirra?

 

Ekkert í lögum segir að undanskilja beri sendibílstjóra frá gjaldtöku fyrir afnot af stöðumælareit og ekki er heimilt að leggja sendibílum þar sem almennt er bannað að leggja bifreiðum.

 

Í 13.mgr 2.gr umferðarlaganna segir að lagning ökutækis telst "staða ökutækis, með eða án ökumanns, lengur en þarf til að hleypa farþegum inn eða út, lesta það eða losa". Þessi málsgrein hefur verið notuð sem rök fyrir því að heimilt sé leggja bifreiðum sem verið er að lesta/losa á öllum stöðubrotum en vakin er athygli á því að í 27. og 28.grein umferðarlaganna þar sem er talað um að eigi má stöðva ökutæki eða leggja (gangstétt, á gangbraut eða í minna en 5 metra fjarlægð, á vegamótum eða í minna en 5 metra frá næstu brún akbrautar á þvervegi, í stæði hreyfihamlaðra osfrv) á skilgreiningin um lagningu ökutækis ekki við.

 

 Ég borgaði í miðamæli-miðinn datt á gólfið/fauk á hvolf? 

Í gildandi reglum um notkun stöðureita í Reykjavík, settum í febrúar 1988 (sbr. heimild í 2. mgr.83 gr. umferðalaga), segir orðrétt í 4. grein: "Ef mælir er þannig gerður að úr honum kemur miði með áletrun um þann tíma, er greitt var í hann eða þau tímamörk sem greitt hefur verið til, skal ökumaður setja miðann á mælaborð við framrúðu bifreiðarinnar, þannig að áletrun á miðanum sé vel sýnileg utanfrá".

 

Þannig er rétturinn til stæðisins fólginn í því að tímamiðinn sé læsilegur á mælaborðinu við eftirlit stöðuvarðar og framvísun miða eða kvittunar eftirá gildir ekki.