Íbúakort
Íbúar í miðborg Reykjavíkur sem búa við gjaldskyld svæði geta sótt um bílastæðakort íbúa, eða svokallað íbúakort. Íbúakort kostar 6.000 krónur og gildir í allt að 12 mánuði. Sótt er um kortið á vefsíðu okkar hér til hliðar, hvort sem um er að ræða nýtt kort eða endurnýjun korts.