Gjaldskyld bílastæði

Myndin hér að ofan sýnir gróflega skiptingu gjaldsvæða í borginni. Ef myndinni og merkingum á mælum ber ekki saman þá eru það merkingar á mælunum sem gilda.
Gjaldsvæðin eru fjögur talsins og er misdýrt að leggja á þeim. Dýrast er gjaldsvæði 1 (rautt svæði) en á því svæði eru m.a. Laugavegur, Bankastræti, hluti af Skólavörðustíg og Kvosin.
Næst dýrust eru gjaldsvæði 2 (blátt svæði) og gjaldsvæði 4 (appelsínugult svæði). Gjaldsvæði 2 eru m.a. hliðargötur frá Laugavegi og þær götur sem eru næst gjaldsvæði 1. Gjaldsvæði 4 er notað við stofnanir og á sambærilegum svæðum þar sem þörf er á að stýra umferð á annan hátt en í miðborginni og þar er annar gjaldskyldutími en á hinum gjaldsvæðunum.
Gjaldsvæði 4 er við Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur og Landspítala-Háskólasjúkrahús við Hringbraut og í Fossvogi.
Til lengri tíma er ódýrast að leggja á gjaldsvæði 3 (grænt svæði) en það eru svæði eins og Skúlagata vestan Snorrabrautar og víða í Þingholtunum.